
Mikill uppgangur hefur verið á Siglufirði síðustu árin. Búið er að endurgera fjölmörg gömul hús við höfnina og nágrenni og ljómar bærinn.
Skákmeistarinn Þröstur Þórhallsson keypti í sumar gamla gagnfræðaskólann á Siglufirði. Þetta er 1.500 fermetra gullfallegt hús sem verið er að breyta í fjölbýlishús. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í vetur eða vor.
Breyting á gagnfræðaskólanum er umfangsmikil. Meðal annars er skipt um allt gler í húsinu. Nýja glerið er frá Glerborg. Ertu ekki forvitin/n um gæðaglerið frá Glerborg? Við verðum á Siglufirði í október. Lestu áfram.
Fallegt hús með sögu
Gamli gagnfræðaskólinn er mikið og fallegt kennileiti. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins á árunum 1920 til 1950, teiknaði skólann ásamt Bárði Ísleifssyni, arkitekt.
Guðjón teiknaði fjölmörg hús og byggingar sem eiga sinn sess í þjóðarsál Íslendinga. Þar á meðal er aðalbygging Háskóla Íslands, Hallgrímskirkja, hús Þjóðleikhússins og margar fleiri fallegar byggingar.
Bárður vann nokkuð með Guðjóni en hann teiknaði líka mörg húsa í vesturbæ Reykjavíkur sem risu á 5. áratug síðustu aldar. Hús Bárðar þykja forkunnar fögur. Sjá má nokkur húsa hans við Hringbraut í Reykjavík.
Guðjón valdi staðsetningu gagnfræðaskólans á Siglufirði og var ákveðið að reisa hann við Hlíðarveg, rétt hjá íþróttavelli bæjarins. Guðjón lést árið 1950 og hófust framkvæmdir við skólann árið eftir. Þær gengu hægt sökum fjárskorts. Til að hraða verkinu varð úr að þegar bræla var á síldarmiðum og lítið að gera niðri við höfn á Siglufirði á síldarárunum lánaði Síldarverksmiðja ríkisins menn til vinnu við skólabygginguna.
Gagnfræðaskólinn á Siglufirði var tekinn í notkun haustið 1957 og var þar kennt í honum allt fram til ársins 2014.
Auðvitað gler frá Glerborg
Vinnan við breytinguna á gagnfræðaskólanum er umfangsmikil enda þarf auk þess að fara yfir lagnir og rafmagn að brjóta niður veggi og setja upp aðra til að breyta skólastofum í íbúðir. Gert er ráð fyrir því að 15 íbúðir verði í húsinu auk tveggja þakhýsa.
Öllu gleri er skipt út fyrir nýtt. Það er mikilvægt að vanda valið og valdi Þröstur að kaupa K-gler, gasfyllt Climaplus einangrunargler frá Glerborg. Gott einangrunargler eins og K-glerið getur dregið úr orkutapi út um glerið og veitir það betri einangrun. Glerið getur því lækkað orku- og upphitunarkostnað í húsum.
Við komum til þín
Við hjá Glerborg verðum á Siglufirði 1. október næstkomandi og munum kynna gæðaglerið okkar hjá SR Byggingavörum við Vetrarbraut 14.
Við viljum endilega hitta sem flesta þegar við komum í heimsókn á Siglufjörð. Kíktu við og fáðu upplýsingar um besta glerið fyrir þig. Við munum einnig kynna sturtugler og spegla fyrir þeim sem ætla að laga til baðherbergið í haust.